Tilkynningar
Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar 19. janúar opinn fréttamönnum frá kl. 9.00
Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis verður opinn fréttamönnum frá kl. 9.00 þann 19. janúar.
Sjá dagskrá fundarins.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fjölmiðlamönnum meðan húsrúm leyfir.
Fundurinn er opinn fréttamönnum en er hvorki tekinn upp né sent beint út frá honum á vegum Alþingis.
Fundirnir verða haldnir með stoð í nýju ákvæði 2. mgr. 19. gr. laga um þingsköp Alþingis.